{"product_id":"snoozle-snuningslak-hvitt","title":"Snoozle snúningslak Hvítt","description":"\u003cp\u003eSnúningslakið frá Snoozle er hannað til að auðvelda fólki að snúa sér eða setjast upp í rúminu. Notendur snúningslaksins segjast upplifa minni sársauka í baki og mjöðmum við hreyfinguna í rúminu, betri svefn og almennt aukin lífsgæði með notkun þess. \u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eHugmyndin er einföld, snúningslakið er saumað sem hólkur (75 x 75 cm þegar hann er lagður flatur á rúmið) sem er sleipur að innan. Þegar fólk liggur ofan á snúningslakinu og snýr sér eða sest upp með aðstoð þess, nuddast sleipu hliðar hólksins saman og auðvelda hreyfinguna. \u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eÁstæða þess að fólk upplifir minni erfiðleika eða sársauka við að snúa sér á snúningslakinu er sú að ekki þarf að spenna auma og þreytta vöðva eins mikið við hreyfinguna og ekki þarf að eyða jafnmikilli orku í að lyfta sér upp fyrir snúninginn. Hreyfingin verður samfelldari og tekur fljótar af. \u003c\/p\u003e\n\u003ch2\u003eHverjir nota snúningslak?\u003c\/h2\u003e\n\u003cp\u003eHérlendis eru snúningslök vinsæl á meðal óléttra kvenna en einnig notuð af mörgum aldurshópum og báðum kynjum. Ástæðurnar fyrir því að fólk á erfitt með að snúa sér í rúminu eru margar, en snúningslakið hjálpar til dæmis:\u003c\/p\u003e\n\u003cul\u003e\n\u003cli\u003eGigtveikum\u003c\/li\u003e\n\u003cul\u003e\n\u003cli\u003eLiðagigt\u003c\/li\u003e\n\u003cli\u003eVefjagigt\u003c\/li\u003e\n\u003cli\u003eHryggikt\u003c\/li\u003e\n\u003cli\u003eSlitgigt\u003c\/li\u003e\n\u003c\/ul\u003e\n\u003cli\u003eÓléttum konum\u003c\/li\u003e\n\u003cul\u003e\n\u003cli\u003eGrindargliðnun\u003c\/li\u003e\n\u003cli\u003eÞreyta i baki og mjöðmum\u003c\/li\u003e\n\u003cli\u003eAuðveldar hreyfingu í rúminu í fæðingu\u003c\/li\u003e\n\u003c\/ul\u003e\n\u003cli\u003eÖðrum sem eiga erfitt með hreyfingu í rúminu\u003c\/li\u003e\n\u003cul\u003e\n\u003cli\u003eMS-sjúkdómur\u003c\/li\u003e\n\u003cli\u003eCrohn's sjúkdómur\u003c\/li\u003e\n\u003cli\u003eParkinsson\u003c\/li\u003e\n\u003cli\u003eAð lokinni aðgerð á baki eða mjöðmum\u003c\/li\u003e\n\u003c\/ul\u003e\n\u003c\/ul\u003e\n\u003ch2\u003eÞvottaleiðbeiningar fyrir snúningslakið\u003c\/h2\u003e\n\u003cp\u003eSnoozle snúningslakið má þvo á 30 °c en skal ekki setja í þurrkara eða strauja. Til að byrja með er best að þvo lakið eitt og sér ef ske kynni að liturinn í því smiti út frá sér. \u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003e \u003c\/p\u003e\n\u003ch3\u003eHvað ber að varast?\u003c\/h3\u003e\n\u003cp\u003eVitað er til þess að Snoozle snúningslakið sé einnig notað í sófum og stólum svo fólk eigi auðveldara með að standa upp eða leiðrétta setstöðu sína, en það hefur ekki verið prófað af okkur í þeim tilgangi og bendum við fólki á að fara varlega því lakið er mjög sleipt. Ekki skal nota snúningslakið í bíl og gæta skal sérstaklega að því að taka snúningslakið strax upp ef það dettur á gólfið því fólk getur auðveldlega runnið og hrasað ef það stígur á lakið. Varast skal að hafa snúningslakið alveg á brún rúmsins. Ef lakið er keypt fyrir einstakling sem þarfnast umönnunar skal tryggt að ofangreindum öryggisatriðum sé fylgt af umönnunaraðila, sé einstaklingurinn ekki fær um það sjálfur. \u003c\/p\u003e","brand":"Snoozle","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":48937298657357,"sku":"aaj1789990493113","price":37.79,"currency_code":"USD","in_stock":true}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/0709\/7984\/6221\/files\/snoozle-snuningslak-hvitt_1.jpg?v=1789990497","url":"https:\/\/tarpshelters.shop\/products\/snoozle-snuningslak-hvitt","provider":"My Store","version":"1.0","type":"link"}